heim
kulu3
kulu6
kulu4
cv
kulu2

 

Kristinn G. Harðarson

Sýnir í Kubbnum 6. mars – 29. mars 2009

Föstudaginn 6. mars opnar Kristinn G. Harðarson sýningu sína Skjól í Kubbnum í samstarfi við við nemendur í Listfræði við Háskóla Íslands og myndlistardeild við Listaháskóla Íslands. Kubburinn er staðsettur í húsnæði myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, að Laugarnesvegi 91.

Verkin á sýningunni Skjól eru unnin eftir völdum skissum sem Kristinn hefur unnið undanfarin ár. Verkin eru unnin undir áhrifum frá lógóum, skiltum, merkjum og slíkum fyrirbærum þar sem texti og hið sjónræna mynda eitt verk. Fyrirmyndirnar í hin einstöku verk eru að miklu leyti til sóttar í fjölmiðla nútímans og einnig tilfallandi myndefni og texta í nærumhverfi listamannsins. Það má því segja að þetta sér bræðingur þess myndefnis og texta sem flæðir um í umhverfi Kristins í erli dagsins. Á sýningunni eru 45 prentaðar myndir sem Kristinn hefur unnið með blandaðri tækni og 3 veggmálverk. Verkin á sýningunni verða einnig til sölu á meðan sýngin stendur yfir.

Í tengslum við opnun sýningarinnar verður haldinn fyrirlestur sem fluttur er af nemendum um feril listamannsins í fyrirlestrarsal Listaháskóla Íslands, Laugarnesi kl 17.00, þann 6. mars. Í kjölfarið opnar sýningin sjálf kl 18.00 og vefur sýningarinnar á sama tíma, en slóðin er http://www.kgh.is/skjol/

Sýningin er opin alla daga vikunnar milli kl 13.00 og 16.00 en um helgar milli kl 13.00 og 17.00.

Sýning stendur yfir til 29. mars.

Nánari upplýsingar um sýninguna gefa Lilja s: 694 2076 og Hildur s: 868 1289

Upplýsingar um Kristinn G. Harðarson og fyrri verk hans má finna vefsíðu listamannsins er http://www.kgh.is/ .

Hér er hægt að sækja fyrirlestur um Kristinn G Harðarson á pdf formi.

Skjá upplausn / Prent upplausn