Föstudaginn 6. mars opnar Kristinn G. Harðarson sýningu sína Skjól í Kubbnum í samstarfi við við nemendur í Listfræði við Háskóla Íslands og myndlistardeild við Listaháskóla Íslands. Kubburinn er staðsettur í húsnæði myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, að Laugarnesvegi 91.

Verkin á sýningunni Skjól eru unnin eftir völdum skissum sem Kristinn hefur unnið undanfarin ár. Verkin eru unnin undir áhrifum frá lógóum, skiltum, merkjum og slíkum fyrirbærum þar sem texti og hið sjónræna mynda eitt verk.

Í tengslum við opnun sýningarinnar verður haldinn fyrirlestur sem fluttur er af nemendum um feril listamannsins í fyrirlestrarsal Listaháskóla Íslands, Laugarnesi kl 17.00, þann 6. mars.

Sýningin er opin alla daga vikunnar milli kl 13.00 og 16.00 en um helgar milli kl 13.00 og 17.00. Sýning stendur yfir til 29. mars.